Færsluflokkur: Bloggar

Draumakaka Kaffibarsins

Er í eina köku, en það er hrottalegalega gott að gera 2 og skella þeim saman , einni dökkri og einni úr hvítu súkkulaði

EFNI:
3 DL Sykur
4 egg

þeyta í rusl

200 gr. Suðusúkklaði (Prófaði að nota hvítt súkkulaði og það var alveg keppnis)
50 gr smjör

bræða í drasl

1dl. Hveiti
100 gr. Hakkaðar Heslihnetur

setja allt saman, í 9" springform og baka

AÐFERÐ

Þeyta saman egg og sykur, bræða saman súkklaði og smjör, blanda svo öllu saman og baka í 30 mín. Við 180°c Muna að smyrja mót vel !!!


Amerískar pönnukökur

Morgunmatur meistarans! Pönnukökur, síróp og beikon.

 mynd_CdEtd3
1 Bolli mjólk

4 msk brætt smjör

1 egg

Þeyta saman

1 bolli hveiti

2 tsk lyftiduft

1 msk sykur

1/2 tsk salt

Hræra útí blautu blönduna, sigta hveitið útí. Gott er að setja eina öskju af bláberjum útí deigið til að hafa smá ferskleika.

Þetta er síðan bakað á pönnu og borið fram með sírópi og beikoni. Staflinn á myndinni er úr 2 uppskriftum og dugar fyrir 4 svanga.

  


Áramótaheitið 2008 er að veiða meira í matinn.

Byssuleyfi

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband